ÆSKUSIRKUS
  • Heim
  • Kennsla
    • Vetrarstarf
    • Sumarnámskeið >
      • sumarnámskeið 7-13 ára
      • Loftfimleikar
  • Hafa samband
  • Um okkur
Vetrarstarf Æskusirkusins
​
Æskusirkusinn stendur fyrir fyrir skemmtilegu vetrarstarfi fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Þar fá hressir krakkar tækifæri til þess að læra hinar ýmsu sirkuskúnstir svo sem loftfimleika, djöggl, jafnvægiskúnstir, húlla og margt fleira. Krefjandi en skemmtilegt námskeið sem æfir styrk, jafnvægi og sköpunargleði á uppbyggilegan hátt.

Við leggjum áherslu á leikgleði, fagmennsku og öryggi iðkenda. Miðað er við að allir nái árangri á sínu áhugasviði og er hverjum og einum nemanda mætt á þeirra getustigi. Námskeiðið er tilvalið fyrir byrjendur í sirkuslistum, en einnig þá sem hafa verið á námskeiðum Æskusirkusins áður.

Tímarnir fara fram í Júdósal Ármanns, Engjavegi 7 í Laugardal.
Næsta önn byrjar sunnudaginn 15. janúar, og eru æfingar frá kl 12:30 - 15:00.
​Önnin eru 14 vikur, og er miðað á að síðasti kennsludagur sé í lok apríl.

 Við tökum við frístundakortinu og bjóðum 10% systkinaafslátt.

Nýjung í vetur!
Á þessu ári verður smá breiting á fyrirkomulagi sunnudagstímanna. Til þess að koma til móts við nemendur á ólíku getustigi ætlum við að skipta sunnudögunum upp í tvo kafla með mismunandi áherslur.

12:30 - 14:00 - Almenn sirkuskennsla í mismunandi sirkusáhöldum. 
Þessir tímar eru hugsaðir fyrir alla, bæði nýja byrjendur og lengra komna nemendur. Farið er yfir grunnatriði í öllum helstu sirkusgreinunum, svo sem djöggli, loftfimleikum, jafnvægi og félagafimleikum. Lögð er áhersla á að skemmta sér og læra nýja hluti vikulega, eins og við höfum gert hingað til.
14:00 - 15:00 - Sérhæfing fyrir lengra komna. 
Seinni klukkutímann leggjum við áherslu á tæknilega æfingu í því sirkusáhaldi sem nemendur hafa mestan áhuga á. Þessir tími er fyrir þá áhugasömustu og færustu nemendur sem vilja leggja sig fram við að ná færni í sirkuslistinni með hjálp reyndra kennara. Í þessa sérhæfingartíma er 10 ára aldurstakmark.
Hægt er að skrá sig annað hvort bara í fyrri hlutan (almennan hóp), bara seinni partinn (Sérhæfing), eða allan daginn (Heill sunnudagur). 
Við mælum með að nýjir nemendur byrji á að skrá sig í almennan hóp.


Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér: www.sportabler.com/shop/sirkus

Loftfimleikanámskeið Æskusirkusins
Auk sunnudagstímanna bjóðum við upp á námskeið fyrir þau sem vilja einbeita sér að loftfimleikum í silki. 

YNGRI HÓPUR

Aldur: 10-16 ára (miðstig og efsta stig grunnskóla)
Námskeið í loftfimleikasilki fyrir nemendur með bakgrunn í silki eða annan góðan bakgrunn í hreyfingu, s.s. dans, fimleikum eða álíka. Á námskeiðinu verður byggt á grunnatriðum loftfimleika - vafninga, klifur og hreyfingar í silki, við lærum ný brögð og bætum styrk, þol og liðleika. Unnið er út frá áhuga og getu hvers og eins og reynt að koma til móts við alla þátttakendur. Námskeiðið er á vegum Æskusirkusins og hentar krökkum sem hafa sérstakan áhuga á að bæta sig í loftfimleikum
Námskeiðið er kennt í sirkushúsnæði Hringleiks á Sævarhöfða.
Kennari er Eyrún Ævarsdóttir, sirkuslistakona.
Verð: 60.000 kr. á nemanda. 
14 vikur, 2 í viku
Mánudagar kl. 16:30-17:30, miðvikudagar kl. 17:00-18:00

Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
​
sirkus@aeskusirkus.is
Æskusirkus, Reykjavík, Iceland
  • Heim
  • Kennsla
    • Vetrarstarf
    • Sumarnámskeið >
      • sumarnámskeið 7-13 ára
      • Loftfimleikar
  • Hafa samband
  • Um okkur