Um Æskusirkusinn
Æskusirkusinn hefur síðustu ár verið með öflugt sirkusstarf fyrir ungmenni, bæði stutt sumarnámskeið og vetrarstarf þar sem krakkarnir læra ítarlegra um sirkusfærnina sem þau velja sér
|
Starfsfólk
Urður Ýrr
er með BA gráðu í mannfræði og viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði. Hún æfði fimleika með fimleikafélaginu Selfoss í fjölda ára og lærði nútíma- og klassískan dans hjá Klassíska Listdansskólanum. Hún stundaði loftfimleika hjá Gravity Circus School í London áður en að hún byrjaði að vinna fyrir Hringleik - sirkuslistafélag og Æskusirkusinn. Hún vinnur nú við að kenna sirkus og loftfimleika. |
Daníel Hauksson
er búinn að kenna sirkus í áratug og hefur sýnt í fjölmörgum sirkussýningum og sérhæfir sig í juggle, acrobalance og jafnvægi. |
Jóakim Meyvant Kvaran
Skólastjóri Æskusirkusins. |
Bryndís Torfadóttir
er 27 ára meistarnemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Hún hefur æft fimleika frá unga aldri og keppti með með meistaraflokki Ármanns og síðar Stjörnunnar í hópfimleikum. Hún hefur starfað við sirkuskennslu frá 2016 og m.a. tekið þátt í sumarsýningum Sirkus Íslands frá 2017. Hún lagði stund á sirkuslistir í AFUK í Kaupmannahhöfn haustið 2018 þar sem hún sérhæfði sig í loftfimleikum. Um þessar mundir vinnur hún með Hringleik og í akró- og loftfimleikadúettnum Duo Decadence. |
Eyrún Ævarsdóttir
útskrifaðist með BA í sirkuslistum frá Codarts listaháskólanum í Rotterdam árið 2016. Síðan hefur hún kennt og sýnt sirkuslistir bæði innanlands og utan. Hún kennir loftfimleika og ýmsar aðrar sirkuslistir í Æskusirkusnum og hefur frá 2016 einnig kennt loftfimleika í Listdansskóla Hafnarfjarðar. Eyrún gekk til liðs við Sirkus Íslands árið 2008, þá 16 ára að aldri. Hún er stofnmeðlimur sirkuslistafélagsins Hringleiks og formaður félagsins, og er hluti af sirkushópnum Captain Sugar and the Monkey Puppets í Hollandi. |
Nick Candy
hefur verið að kenna sirkuslist á ýmsum vegum á Íslandi siðan 2007. Hann var í grunnhópinn sem stofnaði Sirkus Íslands og fyrir það hefur verið leikari og sirkuslistamaður í Ástralíu. Nick fór í grunnnám í leiklistaháskóla út í Ástralíu þar sem áhersla var á itarleg leikaraþjálfun. Nick lauk MA í listkennslu frá Listaháskóli Islands arið 2017 og hefur verið að kenna leiklist og sirkus list í grunnskólum og í Borgarhóltsskóla siðan. Þó að hann sé með með breiða þekkingu á öll grunntækni í sirkusheimi, sérsviðið hans er í trúðum og loftfimleika. |
Axel Diego
|
Harpa Lind
|